Hvað finnst okkur um umferðarmálin í Bústaðahverfi?
Fimmtudaginn 28.febrúar n.k. standa íbúasamtök Bústaðahverfis -Betra líf í Bústaðahverfi- fyrir opnum fundi um umferðarmál.
Fundurinn verður haldinn í Réttarholtsskóla og hefst hann
kl. 20.00
Á fundinn koma fulltrúar Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar og kynna hugmyndir að eftirfarandi framkvæmdum fyrir íbúum hverfisins:
- Fyrirhugaða lokun beygju af Bústaðavegi til norðurs inn á Reykjanesbraut
- Undirgöng fyrir gangandi á Réttarholtsvegi
- Strætóreinar á Miklubraut
Að lokinni kynningu verður almenn umræða um umferðarmálin í hverfinu og önnur mál sem brenna á íbúum.
Mætum öll og höfum áhrif á umræðuna um nærumhverfi okkar.
Stjórn Íbúasamtaka Bústaðahverfis
Skráið ykkur á netfangaskrá íbúasamtakana á netfanginu ibuasamtok@gmail.com